Ég negli og saga og smíða mér...

miðvikudagur, júlí 26, 2006



Sæl öll
Fyrsti í naglhreinsun var í gær :-) eða sko þetta er orðið svo tæknivætt að núorðið koma bara mót, engir naglar og sama og ekkert skaf :) Sá sem fann þetta upp ætti að fá Nóbelsverðlaun :) Aníhú þá vorum við þarna að mausa í gær að losa festingarnar og Valurinn losaði svo mótin frá og ég skóf þau :-) Ekkert I í þessu Teami-i :) Mér varð nú reyndar hugsað til hennar Sólrúnar minnar...sá þarna eina spýtu "with her name on it" ;-) Revenge will be mine!!! Nei ok tapaði mér aðeins þarna :( Allavega hér skelli ég inn myndum...já ég er í kúlutjaldi !!! Þetta var eina peysan sem til var hjá Tengdó og hún var XXXL en þar sem ég var ekkert upptekin af því að vera smart þá virkaði hún bara ljómandi vel :) Skýldi mér fyrir veðri og vindum :)

fimmtudagur, júlí 13, 2006

Já kraftaverkin gerast!!! Það er farið að mynda fyrir húsi eða svona allavega house thingí :) Dugar mér í bili þar sem ég er búin að horfa á sand svon mánuðum skiptir!!! Á hægri hönd má sjá bílskúrinn og og þar í framhaldi svefnherbergin :)


Við hjónin máluðum kofann :)
Vollaaaaa klst síðar :)