Ég negli og saga og smíða mér...

fimmtudagur, ágúst 24, 2006




Sæl öll og þó sérstaklega Gústi :)
Hér má sjá rör sem við mausum saman en þó á Valur 99% heiður af að hafa komið þeim saman...ég var mest með andlegan stuðning :)
Og svo má sjá fyrstu íbúa Lambasels 10...Nasista snigil (6 cm) sem étur samkvæmt fréttum allt sem í vegi hans verður og svo einhvers konar kross bítvín randaflugu og margfætlu...inbríd!!!
Nú bíðum við bara eftir því að fullorðnir menn fari að leika sér í sandkassaleik!

fimmtudagur, ágúst 10, 2006


Sæl öll
Þá er búið að rífa af öllum grunninum og það hafðist með góðri hjálp frá honum Vidda! TAKK KÆRLEGA FYRIR HJÁLPINA :-) Hann mætti á föstudegi og var fram á kvöld og var svo mættur kl 09:00 á laugardegi og rak okkur fram úr bælinu :) Eitthvað má Korki fara að vara sig ef myndin af mér er skoðuð....ég er fyrir það fyrsta eins og hobbiti (ekki það að ég sé fyrir neitt sérstaklega hávaxin en öllu má nú ofgera!) og svo er ég á svipinn eins og....orð eru óþörf. Ragnheiður ég rústaði þér!!!!